Spjall MS-félagsins umræðu hópur Spjall MS-félagsins
MS-félagið Spjallþræðir
 
 Algengar spurningar (FAQ)Algengar spurningar (FAQ)   LeitaLeita   Listi yfir meðlimiListi yfir meðlimi   NotendahóparNotendahópar   NýskráningNýskráning 
 Þín uppsetningÞín uppsetning   Skráðu þig inn til að athuga með einkapóstSkráðu þig inn til að athuga með einkapóst   InnskráningInnskráning 

Atvinna

 
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Spjall MS-félagsins umræðu hópur -> Kannanir
Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði  

Vinnuhlutfall
100%
16%
 16%  [ 3 ]
70%
0%
 0%  [ 0 ]
50%
16%
 16%  [ 3 ]
30%
5%
 5%  [ 1 ]
0%
61%
 61%  [ 11 ]
Samtals atkvæði : 18

Höfundur Skilaboð
Þyri Sölva



Skráður þann: 19 Mar 2005
Innlegg: 26

InnleggInnlegg: Mið Mar 19, 2008 14:02    Efni innleggs: Atvinna Svara með tilvísun

Er fólk almennt að vinna með M.S. hve mikið?
Fulla vinnu eða hlutastarf?
_________________
Kveðja
Þyri Sölva
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst
Laufey



Skráður þann: 05 Feb 2006
Innlegg: 141
Staðsetning: Reykjanesbær

InnleggInnlegg: Mið Mar 19, 2008 19:56    Efni innleggs: Vinna Svara með tilvísun

Ég fór fljótlega á örorku ... Confused
En er núna að sækja um vinnur og búin að fara í eitt viðtal og er ég að vonast til að komast aftur út á vinnumarkaðinn !
Ég er ekki búin að fá kast núna í 14 mánuði og líður bara vel með það og er bjartsýn á að komast í gegnum 100 % vinnu

Kveðja Ósk Laufey
_________________
Kveðja Ósk Laufey
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst
Gudlaug G



Skráður þann: 29 Nóv 2007
Innlegg: 48
Staðsetning: Skagaströnd

InnleggInnlegg: Fös Mar 21, 2008 14:42    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég hef ekkert unnið síðan í lok október, en þá fékk ég kast nr. 2 og greininguna í lok nóvember.´

Ég er leikskólakennari og hef áunnið mér veikindadaga skv. svokallaðri 12 ára reglu eða 273 daga. Staðan hjá mér í dag er að læknirinn minn gefur mér grænt ljós á að vinna hluta úr degi, var í 89,5% starfi, en það er skv. sambandi íslenskra sveitarfélaga ekki gott að blanda saman veikindarétti og vinnu, ég var þá til í að koma inn í óskráða vinnu í ákveðin verkefni en það þykir heldur ekki gott.

Þannig að það er ekkert endilega auðvelt að koma sér út á vinnumarkaðinn aftur, ég vildi fá að reyna hvað ég gæti og koma inn í hlutavinnu en kerfið býður ekki upp á það.
Það er nefnilega ekki æskilegt að vera með læknisvottorð upp á vinnufærni að hluta.

Staðan hjá mér er því sú að ég er enn í veikindaleyfi og verð, ég fer í sneiðmyndatöku í júní og þá á að endurmeta ástandið, þannig að ég sé ekki fram á neina vinnu fyrr en eftir sumarfrí leikskólans.

Þetta er ömurlega svekkjandi, það er ekkert verið að spá í andlega eða mannlega þáttinn í þessu dæmi.
Það er víst ekki nóg að vera komin með sjúkdóm heldur er maður barinn niður með þessu fjárans kerfi okkar.

Kveðja Guðlaug
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Maria Erla



Skráður þann: 31 Jan 2005
Innlegg: 53
Staðsetning: Reykjavík

InnleggInnlegg: Þri Mar 25, 2008 20:56    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég er í háskólanum í 100% námi og það getur stundum verið svoldið stíft. En ég er það heppin að hafa eiginlega ekki fengið kast síðan 2003, en að sjálfsögðu er ég mjög þreytt og þetta tekur á og maður gerir lítið annað á kvöldin en að ligga uppí sófa og fá sér smá lúr yfir fréttatímanum og svona Razz
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda MSN Skilaboð
rosabjorg



Skráður þann: 16 Jan 2007
Innlegg: 46
Staðsetning: Kópavogur

InnleggInnlegg: Mán Mar 31, 2008 14:37    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég er ekki í 100% vinnu en er að taka tvö fög í háskóla Íslands og á 2 börn (3 og 6 ára) og finnst það hellings vinna. Ætla að klára námið (eins og snigill), leyfa krökkunum að stækka og fara svo út á vinnumarkaðinn ef allt gengur að óskum. Hef ekki fengið kast í rúmt ár en finn fyrir einkennum óþarlega mikið, sérstaklega á álagstímum.
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
Oli_Orn



Skráður þann: 23 Jan 2008
Innlegg: 38
Staðsetning: Hafnarfjörður

InnleggInnlegg: Mið Apr 02, 2008 01:32    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég er í framhaldsskóla með 4 áfanga í töflu, það er strembið en ég klóra mig áfram í þessu, gæti sennilega tekið að mér 70% vinnu í sumar... verð helst að gera það, á mér dýrt áhugamál :p
_________________
"Nei" er hvorki svar né lausn, gerðu eins og þér dettur í hug, það ert þú sem ræður Wink

Ólafur Örn Karlsson
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sýna innlegg frá síðasta:   
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Spjall MS-félagsins umræðu hópur -> Kannanir Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1

 
Fara til:  
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum


Powered by phpBB © 2001, 2002 phpBB Group
Þýðing gerð af Baldur Þór Sveinsson © 2002