Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
Höfundur |
Skilaboð |
bk
Skráður þann: 17 Des 2007 Innlegg: 11 Staðsetning: Reykjavík
|
Innlegg: Mið Jan 30, 2008 16:34 Efni innleggs: Beinverkir |
|
|
Hæ hæ
Ég er svona aðeins að velta fyrir mér... Málið er að ég er búin að fá núna tvisvar sinnum á nokkrum dögum alveg svakalega beinverki í annan handlegginn (alveg fundið fyrir beinum fram í putta og svona) og eins og hendin sé alveg blýþung, getur þetta verið MS-tengt? Ég er ekki með neinn hita né slöpp, bara þessir beinverkir í hægri hendi.
Ég slasaðist um jólin (alveg ótengt MS, flaug á hausinn á svelli og féll saman hryggjarliður) svo hef ekkert getað farið út síðan þá og varla náð mér í neinar af þessum pestum sem eru að ganga (alltaf að líta á björtu hliðarnar ). Kannski er þetta einhver furðuleg aukaverkun út af slysinu en mér finnst það ótrúlegt.
Með von um að einhver hafi hugmynd um beinverki!
Kv,
BK |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
Hrönn S.
Skráður þann: 09 Feb 2005 Innlegg: 115 Staðsetning: Danmörk
|
Innlegg: Mið Jan 30, 2008 17:17 Efni innleggs: |
|
|
Jú, ég held það nú að ég kannist við beinverki .... er oft med beinverki í öxlunum og niður handleggina og finn einmitt fyrir þessar þyngsla-tilfinningu, það er eins og einhver standi fyrir aftan mig og styðji ofaná axlirnar á mér
Þar sem ég hef heldur ekki haft hita með þessum beinverkjum, þá einhvern veginn reikna ég með að þetta tengist MS ... þó maður verði náttúrulega að passa sig á því að gefa ekki sjúkdómnum sök á öllum kvillum .. _________________ Kveðja úr danaveldi, Hrönn   |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
bk
Skráður þann: 17 Des 2007 Innlegg: 11 Staðsetning: Reykjavík
|
Innlegg: Fim Jan 31, 2008 16:18 Efni innleggs: |
|
|
takk fyrir svarið.
Var í endurkomu á slysadeildinni í morgun og þar sagði læknirinn mér að þessir beinverkir væru líklegast tengdir slysinu, þeas líkaminn enn að jafna sig á því og taugarnar í einhverjum ham (enda er ég alltaf með einhverja verki í bakinu út af því). En hugsanlega "ýkir" ms þetta ... eða þetta er ótengt ms. Já, maður verður að passa sig að kenna ekki ms um allt sem hrjáir mann!
Vildi bara láta vita fyrst ég var að spyrja um þetta
Kv,
BK |
|
Til baka efst á síðu |
|
 |
|