Berglind
Skráður þann: 08 Feb 2005 Innlegg: 19
|
Innlegg: Fim Júl 29, 2010 16:14 Efni innleggs: Fly For MS |
|
|
Sjálfboðaliðar, erum að skipuleggja flugferð á tveggja hreyfla flugvél (Cessna 340) frá New York, yfir til Íslands og svo áfram til Evrópu og þar sem flogið verður í hring og svo aftur yfir til Íslands og til baka til New York. Takmarkið er að heimsækja um 27 lönd á fimm vikum og lagt verður af stað þriðju vikuna í ágúst.
Ferðalagið í heild sinni er skipulagt af Non-Profit félagi í Bandaríkjunum, sem heitir Fly For MS. Takmarkið með ferðalaginu er að vekja athygli fjölmiðla bæði í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu og vekja umræði og safna áheitum til styrktar fólki með MS.
Ég hvet ykkur til að skoða síðuna www.flyms.org og facebook síðuna (Fly For MS). _________________ Kveðja Berglind Guðmundsdóttir |
|